Viðburðir

  • Sumaropnun 2010
     
    Kört verður opin milli 10 og 18 alla daga í sumar frá 1. júní til 31. ágúst.

    meira

  • Þorsteinn Þorleifsson
     
    Þann 26. júní verður opnuð glæsileg sýning um Þorstein...

    meira

  • Aldaspegill
     
    Ljósmyndasýningin Árneshreppur - Aldaspegill opnuð.

    meira



Sjá fleiri viðburði

Minja- og handverkshúsið Kört

Minja- og handverkshúsið Kört var opnað sumarið 1997. Líklega má segja að aðdragandi að byggingu hússins hafi verið langur en byggingartíminn stuttur. Valgeir Benediktsson í Árnesi hafði frá unglingsaldri haldið til haga gömlum hlutum úr hreppnum án þess þó að safna þeim markvisst. Í hans vörslu var því töluvert af munum sem lítið pláss var orðið fyrir.

            Vorið 1996 fékk Valgeir þá hugmynd að reisa hús sem gæti nýst sem sýningaraðstaða fyrir þessa gömlu gripi og einnig til að koma á framfæri listmunum úr tré og öðrum efnum sem hann hafði um árabil verið að vinn að. Sumarið 1996 var hafist handa við að saga niður efni úr rekavið í húsið. Arkitekt að húsinu var Gunnar Jónsson byggingarfulltrúi í Búðardal. Húsið reis síðan af grunni í ágúst og var orðið fokhelt um haustið. Valgeir vann síðan að innréttingu á húsinu veturinn 1996 – 1997. Það var svo 28. júní 1997 sem húsið var opnað með pompi og prakt. Fjöldi fólks var við opnunina bæði heimamenn og aðkomufólk.

Hér var auðvitað um nokkuð mikla framkvæmd að ræða og ekki er vitað til þess að einstaklingur hafi áður ráðist í það stórvirki að reisa safnahús og sýningaraðstöðu að eigin frumkvæði og að mestu leiti á eigin kostnað.

 

Strax fyrsta sumarið í kom í ljós að þörf var fyrir þá starfsemi sem unnin er í Kört. Fólk kom með handverksmuni sem boðnir voru til sölu í húsinu en slík aðstaða var ekki til áður. Gamlir gripir bárust safninu til varðveislu og Kört fékk þannig það hlutverk sem því var ætlað. Að forða gömlum gripum af svæðinu frá glötun og varðveita þannig, á viðeigandi hátt, menningararfinn og einnig að koma á framfæri handverki og listmunum sem fólk úr héraðinu er að vinna að.

            Kört varð líka fljótt miðstöð upplýsinga um svæðið til ferðamanna, sem mikil þörf var á. Næstu árin fjölgaði ferðamönnum hratt sem lögðu leið sína norður á Strandir og með tímanum varð ljóst að húsnæðið var of lítið fyrir þá starfsemi sem unnin er í Kört. Sumarið 2006 var því ráðist í að stækka Kört. Framkvæmdir hófust þá um sumarið. Húsið var stækkað um ríflega helming. Nýtt hús var reist við hliðina á og tengt við eldri bygginguna með milligangi. Salernisaðstöðu var komið fyrir sem ekki var áður. Öll aðstaða var nú orðin mun betri en áður. Gestir geta nú fengið sér kaffi og gengið út á sólpall sem komið var fyrir við suðurhlið hússins.

 

Það menningarstarf sem unnið hefur verið í Kört frá upphafi hefur nokkra sérstöðu í ferðaþjónustu á svæðinu. Meginstoðirnar eru þrjár:

 

Safnið og safnkosturinn: Að varðveita og hlúa að þeim menningararfi sem í honum felst. Skrá muni í miðlægan gagnagrunn og varðveita þannig til framtíðar upplýsingar um hvern hlut fyrir sig.

Handverkssalan: Að koma á framfæri og selja þá handverksmuni sem fólk úr héraðinu er að vinna að.

Upplýsingagjöf fyrir ferðamenn: Miðla upplýsingum til ferðamanna um hreppinn, sögu hans , mannlíf og menningu.

Hlutverk safnsins er þannig margþætt og styrkir byggð og menningarlíf á Ströndum.

 

Bestu meðmælin um Kört koma frá ferðafólki sem í síauknum mæli sækir safnið heim á hverju ári. Vonandi verður það þannig um ókomna tíð.

 

 

Kört

Hafa samband

Minja- og handverkshúsið Kört
Árnesi 2
523 Trékyllisvík
sími 451-4025
kort@trekyllisvik.is